Skip to product information
1 of 5

Glossy Gel

Glossy Gel - Sheer Pink - Gel Límmiðar

Glossy Gel - Sheer Pink - Gel Límmiðar

Regular price 2.290 ISK
Regular price Sale price 2.290 ISK
Sale Sold out
Taxes included.

Sheer Pink er hinn fullkomni hversdags litur sem passar við allt. Hann þekur ekki alveg sem gerir hann náttúrulegan og flottan.

Athugið: Glossy Gel límmiðana þarf að herða undir naglalampa. Hægt er að kaupa Glossy Gel naglalampa hér eða í Starter Kit hér.

Glossy Gel eru einfaldir, hálfhertir gel-límmiðar sem gefa þér fallegar og endingargóðar neglur þegar þér hentar. Glossy Gel límmiðarnir eru auðveldir í notkun, setjast fullkomlega á þínar neglur og harðna undir nagla lampa til að tryggja að þeir endist á í allt að 2 vikur.

Helstu eiginleikar:

Auðvelt að nota: Þægileg lausn sem hentar bæði byrjendum og þeim sem eru vanir.

Góð ending: Með réttum undirbúningi og ásetningu samkvæmt leiðbeiningum, endist Glossy Gel í allt að tvær vikur.

Engin lykt og ekkert vesen: Engin lykt eða fljótandi lím – bara einfaldir gel-límmiðar sem veita góða vörn fyrir neglurnar þínar.

Gott úrval af stærðum: Í pakkanum eru 20 stykki af gel-límmiðum í 10 mismunandi stærðum svo allir ættu að finna stærð sem hentar.

Auðvelt að fjarlægja: Hægt er að fjarlægja Glossy Gel án þess að nota leysiefni eða skaða og veikja neglurnar.

Innifalið í pakka: 

20 gel-límmiðar í 10 mismunandi stærðum

1x Lítil naglaþjöl

1x Tréprik

2x Sótthreinsiklútar

 

View full details

Collapsible content

Leiðbeiningar

Glossy Gel á að geyma í upprunalegu umbúðunum þar til þeir eru notaðir. Við útsetningu fyrir UV-ljósi og dagsbirtu munu þeir byrja að harðna á plastfilmunni. 

Undirbúningur naglanna

  1. Þvoðu hendur til að fjarlægja olíur og ýttu naglaböndum niður.
  2. Pússaðu yfir, sléttu og mótaðu neglurnar með naglaþjöl. 
  3. Hreinsaðu neglurnar vel með sótthreinsiklút og leyfðu þeim að þorna.

Ásetning

  1. Finndu rétta stærð og fjarlægðu verndarfilmuna.
  2. Taktu gelið af plastfilmunni og límdu það varlega á nöglina. 
  3. Notaðu fingurgómana og tréprikið sem fylgir með til að festa brúnirnar vel niður. Það er mikilvægt að festa gelið mjög vel niður til að fá sem bestu endingu. Þrýstu tréprikinu varlega niður á endana á gelinu.
  4. Fjarlægðu gelið sem er umfram þína nögl. Notaðu naglaskæri og naglaþjöl til að pússa gelið alveg niður að þinni nögl. Glossy Gel er ekki ætlað sem framlenging, svo pússaðu það niður í lengd naglanna þinna.
  5. Settu neglunar undir naglalampann í 60-90 sekúndur. 
  6. Taktu mynd og taggaðu okkur @glossygel.is, okkur finnst gaman að sjá hvernig neglurnar ykkar koma út!

 

Góð Ráð:

  • Geymið alltaf Glossy Gel límmiðana í svarta umslaginu sem það kemur í. Gott er að venja sig á að setja það alltaf aftur í umslagið svo það verði ekki útsett fyrir uv/led ljósi og byrji að harðna á plastfilmunni. 

 

  • Einn pakki inniheldur eina ásetningu. Magn límmiðanna í pakkanum eru fleiri svo allir geti fundið stærð sem hentar sínum nöglum. Við mælum með að geyma restina af límmiðunum þar sem það er gott að grípa í auka límmiða ef það þarf að lagfæra. 

 

  • Ef þú ert með stuttar neglur er hægt að klippa Glossy Gel í tvennt og nota á sitthvora hendina. Þannig nærðu allavega tveimur ásetningum úr einum pakka!

 

  • Það er hægt teygja til Glossy Gel límmiðana til þess að láta þá passa fullkomlega á neglurnar. 

 

  • Ef gelið virðist stíft á plastfilmunni er hægt að hita það með hárblásara í nokkrar sek. Hafðu gelið í svarta umslaginu ef þetta er gert. 

 

  • Passið að setja Glossy Gel ekki á naglaböndin því þá getur það byrjað að lyftast upp af nöglunum. Góður undirbúningur naglanna er algjört lykilatriði.

 

  • Forðist að nota olíur í kringum neglurnar þegar þið notið Glossy Gel.

Myndband:

 

Hvernig á að fjarlægja Glossy Gel

  1. Notaðu tréprikið til að lyfta köntunum á gelmiðunum varlega af nöglunum. Gott er að setja olíu undir kanntana því þá byrjar gelið að losna frá nöglinni. 
  2. Hreinsaðu neglurnar með rakri bómullarskífu eða þvoðu þér um hendurnar með vatni og sápu.
  3. Ef það eru leifar af lími á nöglunum þá getur þú notað olíu eða acetone til að ná því af. 

Góð Ráð

  • Geymið alltaf Glossy Gel límmiðana í svarta umslaginu sem það kemur í. Gott er að venja sig á að setja það alltaf aftur í umslagið svo það verði ekki útsett fyrir uv/led ljósi og byrji að harðna á plastfilmunni. 

  • Einn pakki inniheldur eina ásetningu. Magn límmiðanna í pakkanum eru fleiri svo allir geti fundið stærð sem hentar sínum nöglum. Við mælum með að geyma restina af límmiðunum þar sem það er gott að grípa í auka límmiða ef það þarf að lagfæra. 

  • Ef þú ert með stuttar neglur er hægt að klippa Glossy Gel í tvennt og nota á sitthvora hendina. Þannig nærðu allavega tveimur ásetningum úr einum pakka!

  • Það er hægt teygja til Glossy Gel límmiðana til þess að láta þá passa fullkomlega á neglurnar. 

  • Ef gelið virðist stíft á plastfilmunni er hægt að hita það með hárblásara í nokkrar sek. Hafðu gelið í svarta umslaginu ef þetta er gert. 

  • Passið að setja Glossy Gel ekki á naglaböndin því þá getur það byrjað að lyftast upp af nöglunum. Góður undirbúningur naglanna er algjört lykilatriði.

  • Forðist að nota olíur í kringum neglurnar þegar þið notið Glossy Gel.

Sending

Allar pantanir eru afgreiddar á 1-3 virkum dögum eftir að pöntun berst nema að annað sé tekið fram.

Innihaldsefni

Polyacrylic Acid, Acrylates Copolymer, GlycerinePropoxylate Triacrylate, Isopropylthioxanthone. May contain: D&C Red NO.6 Barium Lake, D&C Red NO.7 Calcium Lake, FD&C Yellow NO.5 Aluminum Lake, FD&C Yellow NO.10, FD&C Blue NO.1, Black Iron Oxide, Titanium Dioxide, Aluminum Powder, Bismuth Oxychloride, Mica, Isobutylphenoxy Epoxy resins, Polyethylene Terephthalate, Fragrance Compound.